Anna Maria Olsen, Mpiri

Anna Maria er 26 ára gamall Færeyingur. Hún hefur alltaf sungið mikið, bæði í kórum, tríóum og sem einsöngvari. Nýlega hefur hún lokið tónleikaferðalagi um Norðurlöndin með færeysku hljómsveitinni Aldurbáran. Anna Maria hefur búið í Danmörku í 8 ár og hefur meðal annars stundað nám í tónlist og sjúkraþjálfun, unnið í leikskóla og á kaffihúsi. Í dag vinnur hún á færeyskri ferðaskrifstofu.
Ester Þórhallsdóttir, Det Islandske Kirkekor

Ester kemur frá Íslandi. Hún flutti til Kaupmannahafnar haustið 2005 og syngur í Kór Íslenska safnaðarins. Áður hefur hún sungið í gospelkór í Noregi. Í dag stundar hún nám við Konunglega landbúnaðar- og dýralækninga- háskólann í Kaupmannahöfn.
Hrafnhildur "Habba" Svansdóttir, Det Islandske Kvindekor

Hrafnhildur eða Habba, hefur sungið í Kvennkór Kaupmannahafnar í 3 ár. Áður hefur hún sungið í Barnakór Árbæjarskóla.
Hrafnhildur Sverrisdóttir, Staka / Det Islandske Kirkekor

Hrafnhildur Sverrisdóttir - Staka og Kirkjukórinn Hrafnhildur 29 ára. Hún flutti til Kaupmannahafnar árið 2000 til að stunda núverandi nám í arkitektúr í Konunglegu lista- akademíunni. Á Íslandi söng Hrafnhildur í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðar Hamra- hlíðarkórnum, en einnig hefur hún numið söng og lokið 7 stigum, fyrst hjá Guðrúnu Tómas- dóttur í Tónskóla Þjóðkirkjunnar og svo hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur í Tónlistarskóla Garðabæjar. Í Kaupmannahöfn hefur hún sungið í Kór íslenska safnaðarins í Kaupmannahöfn, Stöku og færeyska kórnum Kurpali.
Rannvá Mortansdóttir, Húsakórið

Rannvá kemur frá Færeyjum og hefur búið í Danmörku í 7 ár. Rannvá hefur alltaf sungið af mikilli gleði og söng bæði í barnakór Ólavar Hátún í Þórshöfn og Rútmiska Kórinum í Heydölum. Síðastliðin 3 ár hefur hún sungið í Húsakórið. Rannvá var um hríð skiptinemi á Írlandi þar sem hún einnig söng með í háskólakór University Collage of Dublin. Rannvá er með master í ensku, miðlum og menningu frá Háskólanum í Kaupmannahöfn og er í augna- blikinu að leita sér að vinnu.