|
1997 Århus - Kallakórið Quaeduilt Upphaf Norður-Atlantshafskóramótsins má rekja til karlakórsins Quaeduild. Eftir söngskemmtun í Áarstovu, færeysku félagsheimili í Árósum, sat kórinn og slappaði af með öl, léttu gríni og frásögum þegar allt í einu kom þessi hug- mynd um að halda kóramót að færeyskri fyrir- mynd hér í Danmörku. Þessu var eiginlega bara slengt fram en fékk svo góðan hljómgrunn hjá félögunum að skipulagning mótsins fór þegar í gang. 6 kórar tóku þátt og stjórnaði Sunleif Rasmussen samsöngnum. Er haft eftir þátt- takendum að þetta hafi verið dúndurmót. Í veislunni um kvöldið bauð Miðgarðskórinn svo til samskonar hátíðar árið eftir í Odense og var þar með komin hefð fyrir móti þessu. Söngfólk var um 100 talsins og var þetta einstaklega vel heppnað. |
|
1998 Odense - Miðgarðskórið Sem fyrr sagði sá Miðgarðskórinn um kóramótið þetta árið og var það ekki síður vel lukkað. Þátttakendur, um 140 talsins lærðu gospel hjá Etta Cameron en sungu gamalkunn lög undir stjórn Hans Iversen. Að mjög minnistæðu móti loknu bauð Mpiri til Kaupmannahafnar árið eftir. |
|
1999 Gladsaxe - Mpiri Í Gladaxe hittust 170 söngvara og var þetta talið nýtt met enda enda mótið með eindæmum vel heppnað. Aðalstjórnandi var John Höybye. Aðrir stjórnendur voru: Sunleif Rasmussen, Marianne Clausen og Hans Pauli Torgarð. Í veislunni bauð svo Álakórinn til Álaborgar árið eftir. |
|
2000 Aalborg - Áalakórið Í Háskólabúðum félagsfræðinga var enn eitt frábært kóramót haldið. Voru um 140 þátt- takendur undir stjórn Heri Eysturlíð og Erling Kullberg frá tónlistardeild háskóla Árósa. |
|
2001 København - Húsakórið Nú var komið að Húsakórið að sjá um mótið. Var hátíðin að þessu sinni með svolítið öðru sniði. Þátttakendur bjuggu á hinu splunkunýja íþróttahóteli DGI-byen við hliðina á Hoved- banegården í Kaupmannahöfn, borðað var í Færeyingahúsinu á Vesterbrogade en aðal tónleikarnir haldnir í ráðhúsi Frederiksberg. Hátíðin var í alla staði mjög vel skipulögð svo allt heppnaðist þetta einstaklega vel. Þátttaendur voru um 150 og og var tveim gestakórum boðið, Föroyska kóri og Cantabile. Sönginn leiddi Gunnar Eriksson frá Svíþjóð en stjórnandi var sem áður Sunleif Rasmussen. |
|
2002 - friár Á sama tíma og til stóð að halda kóramótið var haldið Norður-Atlantshafsmenningarmót Vigdísar Finnbogadóttur svo ákveðið var að fresta mótinu. |
|
2003 - enn eitt friár Vegna frumkvæðaskorts féll mótið niður þetta árið. Olli þetta svo miklum vonbrigðum að ákveðið var að skipa nefnd sem sitja áttu fulltrúar kóra frá hverju landi og skipuleggja mótið. Er þetta í fullum gangi og er stefnt á heljarinnar mót í maí 2004. |