Aviaja LumholtAviaja Lumholt (37), hálfur Grænlendingur og hálfur Dani, ólst upp á Jótlandi, í Japan og á Norður og Vestur Grænlandi. Hún hefur einnig búið eitt ár í Ameríku og þrjú og hálft ár í Berlín. Í dag býr hún í Kaupmannahöfn með dætrum sínum, 10 og 13 ára. Hún útskrifaðist frá Rythmíska Tónlistarháskólanum sem söngvari og tónlistarmaður. Þar á undan stundaði hún nám við grænlenskan leiklistarskóla í Tuukkaq. Þar lærði hún grímudans sem hún grípur til er hún kemur fram. Aviaja hefur verið einsöngvari og bakraddarsöngvari grænlenskum rokkhljóm- sveitum og hefur tekið þátt í upptökum og tónleikaferðalögum meðal annars með Rasmus Lyberth. Í Danmörku hefur hún til dæmis unnið með Marilyn Mazur, Jungleorkesteret, Etta Cameron. Árið 1996 hlaut hún Rolandprisen. Aviaja hefur kennt í tónlistarskólum, til dæmis heyrnarlausum í rythma og Grænlendingum. Um stutt skeið var stjórnaði hún grænlenska kórnum Mik. Í augnablikinu er Aviaja að undirbúa fyrstu sólóplötu sína. |